09júní

5 mánađa og stćkkar hratt!

Jæja þá er Einar Ari orðinn fimm mánaða, reyndar smá síðan. Þetta líður svoo hratt! Við fórum í fimm mánaða skoðun í dag og hann var orðinn 7.850 grömm og 69 cm. Búinn að stækka dáldið mikið síðan síðast! Hann fékk sprautu líka og þetta var held ég erfiðara fyrir mig heldur en fyrir hann :) svo lét ég lækninn kíkja aðeins á hann því hann er búinn að vera með kvef í 2 mánuði! Ég er núna búin að fara með hann fjórum sinnum til læknis! Fyrst var ekkert gert, bara sagt að þetta myndi lagast svo næst þegar ég fór fékk hann eitthvað hóstasaft sem auðvitað hjálpaði ekkert! svo næst þegar við komum fékk hann púst og svo í dag fékk hann annað púst! þetta er óþolandi! afhverju er ekki bara hægt að gefa honum fúkkalyf! hann er með sama kvef og allir í fjölskyldunni eru búnir að vera með og við höfum öll þurft fúkkalyf, afhverju ætti hann að vera eitthvað öðruvísi, ég er að spá í að fara bara með hann til læknis í Reykjavíkur! Hann er 3 búinn að fá hita með þessu kvefi greyið! Hann þarf að fara að losna við þetta!

Allavegana það gengur allt annað mjög vel, hann sefur ennþá allar nætur og leggur sig líka eftir hádegi. Ritgerðin mín gengur ágætlega nema ég lagðist í smá veikindi, ég fékk lungnabólgu en ég er orðin góð núna. Gestur er bara að vinna og vinna á nóttunni og sefur á daginn. Ég fór í beltapróf í Taekwondo um daginn, ég tók það veik með lungnabólgu en það gekk samt vel, núna er ég komin með gula rönd :) Ég ætla að æfa á selfossi í sumar :)

Annars er ekkert mikið að frétta, það eru allir velkomnir í heimsókn, við erum á Selfossi hjá mömmu og pabba í sumar :)

kv Hekla, Gestur og Einar Ari :) 
09. júní 2009 klukkan 11:47
Hekla Ţöll Stefánsdóttir
Dagbók
Engin athugasemd
06maí

Próf og fleira

Jæja þá er ég að fara í mitt fyrsta og eina lokapóf á morgun í fornvistfræði. Ég ætla að skrifa BA ritgerðina mína í sumar þannig að ég get klárað BA gráðuna næstu jól :) hverjum hefði nottið í hug að það að eignast barn myndi hjálpa manni að flíta skólanum :) ég er neflinlega í fæðingarorlofi í sumar og fínt að nota það í ritgerðina. Við verðum á Selfossi í sumar, Gestur er farinn að vinna í Guðnabakaríi þannig að við erum eiginlega komin á selfoss nema ég keiri 2 í viku í bæjinn á taekwondo æfingar :) ég ætla samt að æfa bara á selfossi í sumar.

Einar Ari er bara hress, hann er reyndar búinn að vera með kvef í meira ein mánuð núna en hann er komin með meðal, hann er með eitthvað astma tengt kvef þannig að það er mjög líklegt að hann verði með astma þegar hann verður eldri, alveg eins og Ísak bróðir minn. Ekki gaman að þessu en hann sefur ennþá svona vel, ég svæfi hann klukkan 9 á kvöldin og hann sefur alveg til 7 á morgnanna og fær þá að drekka og svo sefur hann til 10-11 bara lúxus. 

jæja áfram með lærdóminn :) 
06. maí 2009 klukkan 11:21
Hekla Ţöll Stefánsdóttir
Dagbók
Engin athugasemd
16mars

Einar Ari

Jæja þá er pjakkurinn kominn með nafn hann heitir Einar Ari Gestsson :) Hann fékk alveg helling af gjöfum og fullt af peningum sem eru komnir í bankann :) Hann grét næstum alla skírnarathöfnina í kirkjunni, sem er mjög óvenjulegt fyrir hann þar sem hann grætur næstum aldrei:) Annars gengur rosalega vel hjá okkur, hann er reyndar búinn að vera lasinn með kvef og smá hita en hann er nú að lagast. Hann er voða góður, sefur alltaf allar nætur sem er bara þægilegt. 

Við fórum á Bessastaði á síðasta föstudag í vísindaferð og Einar Ari kom með, hann svaf bara allann tímann :) rosa góður, svo vorum við svo óheppinn að það sprakk dekk hjá okkur fyrir utan Bessastaði þannig að Gestur þurfti að fara út að skipta um dekk í sparifötunum :s en það reddaðist sem betur fer.

Annars er bara ekkert að frétta skólinn gengur vel og bara allt gengur rosa vel.

Kveðja Hekla, Gestur og Einar Ari 
16. mars 2009 klukkan 14:13
Hekla Ţöll Stefánsdóttir
2 athugasemdir
17febrúar

Smá fréttir af okkur :)

Hæ hæ

Þá er loksins hætt að vera svona kallt úti! við erum farin að láta hann sofa úti og hann fór í sinn fyrsta göngutúr í dag í helli rigningu og roki :) hann svaf allann tímann :) Annars gengur allt vel, hann er ennþá alveg jafn vær og góður og þetta er svo auðvelt að ég næstum trúi því ekki, ég get gert allt sem ég vil eins og áður en hann fæddist :) ég er farin að æfa taekwondo sem er ekkert smá erfitt en ógeðslega gaman.

Við ætlum að skíra pjakkinn 7 mars næstkomandi uppi í sveit. Við erum löngu búin að ákveða nafnið :) Skólinn gengur ljómandi vel enn sem komið er. Ég er í þrem fögum, Norrænni trú sem ég er að taka í fjarnámi, Fornvistfræði sem ég mæti í 2 í viku og svo er þriðja námskeiðið kennt í maí í tvær vikur þar sem ég er að fara í uppgröft á Reykjanesi þannig að ég verð sennilega að taka pjakkinn með í það en þá verður hann líka orðinn svo stór. 

Hann er farin að brosa svo mikið :) Gestur var að taka upp vídjó af honum í gær þegar hann var að brosa og hjala og svo allt í einu kom ælugusa upp úr honum, það var reyndar dáldið fyndið þó að það sé nú ekki gaman þegar hann gubbar :) En bráðum fer hann að verða 2 mánaða, vá hvað þetta líður hratt! :) 

Bestu kveðjur Hekla, Gestur og Litli sæti dúllu kall :) 
17. febrúar 2009 klukkan 14:20
Hekla Ţöll Stefánsdóttir
Dagbók
2 athugasemdir
09febrúar

6 vikna skođun

Við fórum í 6 vikna skoðun í morgun og það kom allt vel úr, hann er orðinn 4260 grömm og 56 cm. Búinn að stækka helling. Hann var rosa rólegur á meðan það var verið að skoða hann og svaf bara :) Reyndar er hann alveg rosalega góður, sefur næstum alltaf alla nóttina, stundum vaknar hann til að drekka en það er mjög sjaldan, þannig að við hvílumst rosa vel. Hann er líka bara rosa rólegur og góður allann daginn og grætur næstum aldrei. Hann fór út í vagn í fyrsta skipti í gær, hann hefur ekki komist neitt út því það er búið að vera svo rosalega mikið frost en vonandi fer að hlína meira. Skólinn hjá mér gengur ágætlega enn sem komið er :) Annars er ekki mikið að frétta, ég er byrjuð að æfa Taekwondo sem er rosa gaman :)

Bestu kveðjur frá litlu fjölskyldunni.... :) 
09. febrúar 2009 klukkan 12:48
Hekla Ţöll Stefánsdóttir
Dagbók
1 athugasemd
17janúar

3 vikna gutti

Jæja þá er litli strákurinn orðinn 3 vikna gamall :) Hann er rosalega góður og sefur alla nóttina, ég þarf að stilla vekjaraklukkuna mína á nóttinni til að vekja hann og gefa honum að drekka :) hehe hann er líka fínn á daginn en vill vaka samt soldið en er samt ekkert mikið fyrir að gráta. Hann er orðin þrjú og hálft kíló og búin að stækka helling finnst mér :) Það er ekki eins erfitt að eiga barn og ég hélt, maður þarf bara að gefa honum að drekka á þriggja tíma fresti og svo sefur hann bara meirihluta sólahringsins en sennilega er þetta nú mismunandi eftir börnum og getur átt eftir að breytast. Það gengur vel að gefa honum brjóst en þó gef ég honum alltaf smá ábót af þurrmjólk fyrir nóttina. Við förum svo í bæinn í febrúar þegar Gestur byrjar í fæðingarorlofi. Annars erum við núna bara á Dverghólunum hjá mömmu og pabba að hafa það gott, svo er skólinn byrjaður hjá mér og það gengur bara vel enn sem komið er. 

Jæja þá er ég farin að sofa :D

kveðja Hekla og litli strákurinn :) 
17. janúar 2009 klukkan 23:02
Hekla Ţöll Stefánsdóttir
1 athugasemd
03janúar

Komin heim

Hæ hæ 

Jæja þá erum við komin heim í annað sinn með strákinn. Fæðingin gekk rosalega vel en var reyndar dáldið löng, verkir byrjuðu á aðfangadag klukkan 15:00 og komu með 5 mínútna fresti og voru frekar vondir, um ellefu leitið fórum við upp á sjúkrahús þar sem útvíkkun var skoðuð og ég sett í mónitor, úttvíkun var bara tveir svo við vorum send aftur heim með verkjatöflur og svefntöflu svo ég gæti hvílst eitthvað. Daginn eftir, jóladag, voru verkirnir ennþá í gangi, alltaf á 5 mínútna fresti en voru samt ekkert að versna, bara alltaf jafn vondir. Við fórum svo um kvöldið upp á sjúkrahús og þá var úttvíkkun ennþá tveir sentimetrar! við fengum þó að gista á sjúkrahúsinu í þetta sinn. Daginn eftir 26 desember vöknuðum við um átta og var þá útvíkkun athuguð og var orðin fimm sentimetrar loksins! verkirnir voru þó ennþá ekkert svo vondir. Um tíu leitið fengum við að fara í fæðingarstofuna og um klukkan eitt var belgurinn sprengdur því úttvíkkunin var ekkert að aukast og það var ekkert að styttast á milli verkja, hún náði einnig að færa hausinn hans aðeins til því hann var aðeins skakkur og hafði ekki verið að þrýsta alveg rétt á leghálsinn, eftir þetta fóru verkirnir að vera aðeins verri og það fór að styttast á milli hríða. Klukkan tvö voru verkirnir orðnir óbærilegir og var þetta versti sársauki sem ég hef fundið og ég fékk þannig tilfinningu að ég bara hreinlega gæti þetta ekki, ég fór aðeins í baðið en leið ekki vel þar, hálf þrjú fór ég uppúr og fór upp í rúmið á fjóra fætur því þannig leið mér best. Ég fékk nokkara hríðar og svo tuttumínútur í þrjú var útvíkkunin loksins búin og ég mátti fara að rembast, ég var svo fegin að þessir vondu verkir voru búnir að ég get ekki lýst því! Rembingurinn var alls ekki svo slæmur, það kom bara svona tilfinning sem ég réð ekki við og ég bara varð að rembast! mjög skrýtið, strákurinn kom svo út í fimm rembingum, og hann eiginlega skaust út! mjög sérstök tilfinning :) Hann var 13 merkur og 51 cm. Hann fæddist klukkan 14:56 :)

Við fengum svo að fara heim 30 desember og fengum að vera heima á áramótunum en þurftum svo að fara aftur á sjúkrahúsið á nýársdag því að strákurinn var orðinn svo gulur og er ekki nógu duglegur að sjúga brjóstið þannig að það þurfti að reyna snúa ferlinu við og hann var settur í ljós og gefið honum reglulega að borða svo fengum við að fara heim í dag. :)

vonandi gengur framhaldið bara vel, hann verður vigtaður á sjúkrahúsinu á mánudaginn :)

kveðja Hekla, Gestur og litli stákurinn :) 
03. janúar 2009 klukkan 19:38
Hekla Ţöll Stefánsdóttir
5 athugasemdir
18desember

39 vikur!

Og þá eru vikurnar orðnar 39! bara ein til þrjár eftir, kannski minnia:D Ég er orðin svo spennt og er alltaf að vona að það séu komnir einhverjir verkir en það gerist ekki neitt! Ég kvíði ekki neitt fyirir fæðingunni lengur heldur hlakka ég bara til að klára þetta, er orðin svo þreytt á að vera alltaf með bumbuna út í loftið og svo er ég líka alltaf að reka hana í því stundum gleymi ég henni hehe. 

Það er flest tilbúið fyrir krílið, erum komin með barnavagn, barnabílstól, baðbala, skiptiborð, barnapíutæki og já bara flest allt held ég, eigum reyndar ekkert allt of mikið af fötum en það dugar eitthvað svona til að byrja með, svo keipti Gestur svona KR-sólhlífar í bílinn hehe, hann er svo mikill KR-ingur :) 

Ég er búin að gera ALLT sem ég ætlaði að gera fyrir jólin, er búin að baka hellingi fyrir mömmu, sauma mér kjól, prjóna mér húfu og kaupa allar jólagjafir, það eina sem er eftir er að fæða eitt barn! ég vona að þetta komi núna á næstu dögum því mig langar svo að hafa litlu dúlluna hjá mér um jólin :) Aumingja Gestur er að vinna öll jólin í Reykjavík en hann er tilbúinn við símann ef eitthvað fer að gerast :)

Jæja ég ætla að halda áfram að bíða!

Kv Hekla Þöll 
18. desember 2008 klukkan 18:22
Hekla Ţöll Stefánsdóttir
Dagbók
2 athugasemdir
10desember

Jólafrí

Þá er ég komin í jólafrí :) það er svo yndislegt að vera búin í skólanum :D Ég er ennþá að bíða eftir einkunum en þær hljóta að fara að koma :) Annars er ég komin á Selfoss til mömmu og pabba í dekur þar til lítla krílið ákveður að kíkja í heiminn :) Ég er búin að gera nokkra hluti í fríinu, baka, sauma mér jólakjól og kaupa allar jólagjafir þannig að núna tekur við hið mikilvæga verkefni að gera ekki neitt og njóta þess að vera í fríi og slappa af, annars er ég alveg að missa mig úr spenningi, ég hlakka svo til að fá litla krílið okkar í hendurnar, það er svo stutt í þetta! bara 2 vikur og 2 dagar! jii hvað þetta hefur liðið hratt! Það er nú flest að verða tilbúið nema við erum ekki ennþá komin með barnabílstól en hann er alveg á leiðinni :) Annars er ekkert meira að frétta svo ég segi bara gangi ykkur vel í prófum sem eruð enn í þeim og skemmtið ykkur í vinnunni sem eruð ekki komin í jólafrí ennþá. 

Hekla og Gestur og kríli í maga! 
10. desember 2008 klukkan 00:03
Hekla Ţöll Stefánsdóttir
Dagbók
3 athugasemdir
28nóvember

Svo stutt

Jæja þá eru komnar 36 vikur! Ótrúlegt hvað þetta er búið að líða hratt! það eru bara fjórar vikur í settann dag! Skólinn er alveg að verða búinn hjá mér og jólafríið nálgast hratt! Ég get ekki beðið eftir þessum jólum sem verða án efa þau eftirminnanlegustu í lífi mínu :) Ég er orðin dáldið stressuð fyrir fæðingunni þar sem allir eru svo duglegir að segja mér hræðilegar fæðingasögur en ég er búin að ákveða að það muni bara allt ganga vel hjá okkur, auðvitað verður þetta vont en það verður í svo stuttann tíma og ég fæ svo frábær verðlaun í staðin þegar ég er búin :) ég er eiginlega að vona að ég verði búin að fæða fyrir jól því það verður svo gaman að geta haft krílið hjá sér á jólunum :)

Annars setti ég inn eina bumbumynd :) hún er búin að stækka smá en er samt ekkert risavaxin enda segir ljósmóðirin að þetta verði frekar lítið barn, og þar af leiðandi muni fæðingin sennilega verða auðveldari :) gott að ég og Gestur erum bæði lítil og mjó :)

Annars er ekkert meira að frétta, ég fer heim á Selfoss 8 des og þá mun ég bara bíða eftir krílinu og jólaföndra og baka með mömmu :)

kveðja Hekla, Gestur og litla krílið sem er alveg að fara að koma í heiminn! 
28. nóvember 2008 klukkan 00:08
Hekla Ţöll Stefánsdóttir
Dagbók
3 athugasemdir

Innskráningar kubbur

Auglýsing

Velkomin(n)

Hć hć...ég heiti Hekla Ţöll Stefánsdóttir og ţetta er bloggsíđan mín...endilega eyddu ţínum dýrmćta tíma hér og mundu ađ skrifa svo í gestabókina...:)

heklas@hotmail.com

Hekla Ţöll - Ég

  • Nafn: Hekla Ţöll Stefánsdóttir
  • Netfang: heklas@hotmail.com
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: Námsmađur og frístudaleiđbeinandi
  • Um mig: Ég heiti Hekla Ţöll og á ţessa bloggsíđu, ţó ég bloggi reyndar mjög sjaldan. Ég er ađ lćra fornleifafrćđi viđ HÍ sem er rosa stuđ.

Geđveik lög!













Könnun

Hvort er ţetta strákur eđa stelpa?

Tilkynningar

* GESTABÓKIN...
30 okt? hvađ ţá?

Leit

Klukkan